Spyrja höfundinn

Hér á þessari síðu gefst þér tækifæri á að senda mér spurningar sem ég mun eftir fremsta megni reyna að svara um hæl.

34 svar/svör ↓

  1. Bleika says:

    Gamli ekkert orðinn þyrstur?

  2. Þorgrímur Þráinsson says:

    Jú, eitthvað í boði?

  3. hlynur snær says:

    hvað ertu gammal og hvað ertu buin að skrifa margar bækur (með öllum með töldum)

  4. Græna says:

    Er ekki diet kók inn í dag :)

  5. Þorgrímur Þráinsson says:

    Sæll Hlynur Snær. Ég er fimmtugur og hef skrifað 23 bækur, að öllum meðtöldum. Eigðu fallegan dag.

  6. Marta says:

    hver er þín uppáhalds bók af þessum 23?

  7. Þorgrímur Þráinsson says:

    Sæl Marta
    Allt hold er hey, Tár, bros og takkaskór, Núll Núll 9, Margt býr í myrkrinu, Svalasta 7an, Sex augnablik og Spor í myrkri.

  8. M says:

    hvað með Eiginkonu bókina?
    Annars er allt hold hey mjög góð bók :)
    Af hverju alltaf unglinabækur? Einhver sérstök ástæða? Saknaru unglings árana??

  9. Þorgrímur Þráinsson says:

    Unglingabækur? Ég hef ekki skrifað unglingasögu í 5 ár. En… hugmyndir koma, hæfa ákveðnum aldurshópi og verða að veruleika. Og
    þar fyrir utan eru svo fáir að skrifa fyrir eldri unglinga. Fáir nenna að sinna þeim enda ekki arðbært. Nei, ég sakna ekki unglingsáranna þótt þau hafi verið ljúf.

  10. Á.G.E. says:

    Ég var núna að lesa Margt býr í myrkrinu fyrir kjörbókarritgerð í skólanum og fanst hún mjög skemmtileg :)

  11. þórdís ása says:

    verður framhald af 009?:)

  12. alma says:

    kemur ut framhald af 009 ? :)

  13. Smári Snær says:

    Hvers vegna hafa svona margar af bókunum þínum tölustafi í titlinum?

    Hvernig varstu í boltanum í yngri flokkum, alltaf í A liði??

    Haltu svo áfram að skrifa svona frábærar bækur :)

    bestu kveðjur,
    Smári Snær

  14. Þorgrímur Þráinsson says:

    Svalasta 7an var skírskotun í David Beckham þegar hann var hjá United. Síðan var við hæfi að halda sig við 4 í Undir 4 augu og
    núll núll 9 átti að vera núll núll 7 en forlagið vildi ekki að ég stæli titlinum frá James Bond. Engin sérstök ástæða fyrir þessu.
    Ég ólst upp í Ólafsvík og þar var alltaf 1 lið, ekkert A-B-C lið en ég hefði pottþétt verið í C-liði til að byrja með ef ég hefði alltaf verið í Val.
    Takk, ég geri mitt besta.

  15. Þorgrímur Þráinsson says:

    Fyrir einum mánuði hefði svarið verið NEI. en ef ég dett niður á einhverja skemmtilega hugmynd eða ,,plott” þá má vel vera að ég komi með framhald af bókinni.
    Allar hugmyndir vel þegnar.

  16. Þorgrímur Þráinsson says:

    Kemur í ljós. Ég treysti því að ég fái frábæra hugmynd um jólin og byrji að fullum þunga að skrifa framhaldið. Ef ekki….. þá hef ég nóg annað að gera.

  17. Þorgrímur Þráinsson says:

    Takk fyrir það. Ég er mjög ánægður með þá bók, enda fékk hún verðlaun. Og gerist á mínum uppáhaldsstað á landinu. Á Hótel Búðum á Snæfellesnesi.

  18. smári snær says:

    hvernig líst þér á að skrifa framhald um Skapta og þá?

  19. ólafur says:

    verður hægt að fá áritað eintak af bókinni?

  20. Elías Bergmann says:

    Ég las bókina svalasta sjöan í fyrra og mér fannst hún vera mjög góð. Var bara fyrst núna að átta mig á því að það er komið framhald af henni. En það sem ég var að hugsa um er, hvar getur maður náð í þessar bækur?

  21. Þorgrímur Þráinsson says:

    Nei ég skrifa pottþétt ekki framhald af Skapta og co.

  22. Þorgrímur Þráinsson says:

    Já, það er alveg sjálfsagt. Ef þú kaupir bókina og hringir svo í mig eða sendir póst mun ég vitanlega árita hana fyrir þig.

  23. Þorgrímur Þráinsson says:

    Svalasta 7an ætti að vera til á öllum bókasöfnum og kannski líka þessi nýja. Ég veit að Svalasta 7an fæst ekki lengur úti í búið en Núll Núll 9 fæst í verslunum og er án efa ódýrust í Bónus.

  24. smári snær says:

    hæ.
    Takk fyrir bréfið sem Guðný kom til mín svo ætlaði ég líka að spyrja þig hvort þú verðir að árita nýju bókina einhverstaðar fyrir jólin.

  25. Sandra says:

    Takk fyrir frábærar bækur, las núna svalasta 7, undir 4 augu og núll núll 9 á 5 dögum, gat bara ekki hætt ;)

  26. Sandra says:

    Langar að benda á að á bls. 82 minnir mig (búin að skila bókinni á bókasafnið) er skrifað Ásthildur í stað Álfhildur, ekki að það skipti öllu. En þetta er allaveg á bls, þar sem Þráinn pabbi ÁLfhildar keyrir þau á Bautan að borða.
    Langar ekkert að vera leiðileg, vildi bara láta þig vita.
    Kveðja Sandra.

  27. Þorgrímur Þráinsson says:

    Sæll Smári Snæ´r
    Ég mun árita bókina Núll Núll 9 á morgun, sunnudag milli 14 og 16 í Eymundsson Kringlunni.

  28. Þorgrímur Þráinsson says:

    Takk Sandra fyrir ábendinguna. Það er oft stafsetningavillur í bókum. Ég læt lagan þetta þegar og ef bókin verður endurprentuð. Hún er reyndar nýkominn úr 3ju prentun en takk fyrir ábendinguna.

  29. Smári Snær says:

    kláraði 009 í gær hún er SNILLD!!!!!!

  30. ragnhildur says:

    afhverju er svalasta 7an og undir 4 augu skrifaðar í 3 persónu en núll núll 9 í 1 persónu?

  31. Arnar says:

    Þú komst í skólann minn og hélst fyrirlestur og ég bara varð að fá bókina ,og mér finnst hún geðveik, gat bara ekki hætt að lesa!

  32. agnes says:

    Er til framhald af Svalasta 7an?

  33. SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM
    SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM SPAM

  34. Berglind María says:

    hæhæ. Ég fékk Núll Núll 9 í jólagjöf og kláraði hana þremur dögum eftir jól. Hún var svo spennandi. En verður framhald ? Plís.

Skrifaðu athugasemd